Sunnlenska Deildin - Meistaradeildin á Suðurlandi í knattspyrnu
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 27 maí
27.05.2011 13:43:05 / ballroq

Ný heimasíða

Ný heimasíða deildarinnar er sunnlenskadeildin.is.

Endilega kíkið á hana.


» 20 hafa sagt sína skoðun

03.03.2011 10:05:25 / ballroq

Sumarið 2011

Nú er allt að fara af stað fyrir sumarið. Ákveðið hefur verið að síðasti skráningardagur í deildina sé 15. apríl næstkomandi.

ATH. 15. apríl 2011


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2010 23:19:55 / ballroq

Úrslit kosninga stjórnar um bestu leikmenn ársin í Sunnlensku deildinni

Markmaður ársins 2010: />

Sigfús Harðarson UMFG />

Geysiöflugur markvörður vel  að titlinum kominn. Spilaði alla leiki UMFG í sumar og fengu þeir á sig 15 mörk í deild og 4 í bikar. Er það Sigfúsi og öflugri vörn að þakka að þau eru ekki fleiri.  Aðeins Kompás eru með færri mörk fengin á sig í sumar. />

Aðrir sem voru tilnefndir eru: />

Aron Valur Leifsson - Kompás Kompás fá á sig fæst mörk í sumar />

Gústaf Lillendahl - Útrásarvíkingar. Hann fékk trúlegast á sig fæst mörk í sumar af öllum markvörðum eða 8 stykki. Spilaði bara 5 leiki. />

Marius Vaisvilas - Biskup />

Ingvar Örn Eiríksson – Liðið hans Steina />

Svanur Bjarki Úlfarsson – Ástríkur PSV />

>

Varnarmaður ársins 2010: />

Hilmar Þór Jónsson – Kompás. Kompás spilaði með geysiöfluga vörn og skilaði það því að liðið varð meistari og ?. Þá fékk liðið alls bara á sig 16? mörk í sumar í deild og bikar. />

Aðrir tilnefndir />

Kristján Valur Sigurjónsson - UMFG              />

Jón Hrafn Baldvinsson - Biskup                 />

Arnþór Tryggvason - Útrásarvíkingar              />

Edwin Rögnvaldsson – Liðið hans Steina                 />

Jón Þór Hrannarsson – Ástríkur />

>

Miðjumaður ársins 2010: />

Hjörtur HarðarBiskup. Hjörtur er aldursforseti deildarinnar og er hann eins og gott eðalvín en hann verður alltaf betri og betri eftir því sem hann eldist. Hjörtur stjórnar öllu spili hvort sem það er vörn eða sókn Biskupsmanna. Hjörtur er virkilega vel að þessum titli kominn. Að auki er hann mjög prúður leikmaður, fær sjaldan spjöld og tuðar sjaldan yfir dómum. />

Aðrir tilnefndir />

Héðinn Harðarson - UMFG          />

Stefán Jóhannsson - Útrásarvíkingar />

Hjálmar Már Kristinsson – Liðið hans Steina />

 Kjartan Björn Elísson - Kompás              />

Þorvaldur Guðjónsson -  Ástríkur     />

>

Sóknarmaður ársins 2010: />

Kristinn Ólafsson - Biskup. Gríðargóður sóknarmaður. Spilaði 8 leiki fyrir Biskup í sumar og skoraði í þeim samtals 17 mörk. Hann setti 2x2 mörk, 2 þrennu og 1 fernu í þessum 8 leikjum. />

Aðrir tilnefndir />

Þráinn Pálsson – UMFG. Skoraði 8 mörk í 12 leikjum. 1 sinni þrennu.  />

Halldór Ari Tómasson – Útrásarvíkingar. 5 mörk í 10 leikjum      />

Eyjólfur Eyjólfsson – Liðið hans Steina. Einn af þessum 3 mjög svo öflugu framherjum deildarinnar. 13 mörk í 7 leikjum. 2x2 mörk, 1x3 og 1x4 í þessum 7 leikjum.          />

Magnús Helgi Sigurðsson -         Kompás. Hefði alveg getað tekið þennan titil eins og Eyjó og Kristinn. Markahæsti maður deildarinnar með 16 mörk. Skorar alls 18 í heildina í 13 leikjum. Setur 2x2 mörk, 1 sinni þrennu og 1 sinni 5 í sama leiknum. Má það?          />

Guðni Albert Kristjánsson – Ástríkur. Þrátt fyrir að spila bara 2 leiki og ekki skorað mark fyrir Ástrík er hann tilnefndur af þeirra hálfu. Spurning um að fara fá nýja framherja? />

>

Efnilegasti leikmaður deildarinnar 2010: />

Sigurður Kristmundsson – UMFG. Fæddur 1993 og þykir gríðarlegt efni. />

Aðrir tilnefndir />

Jón Óskar Jóhannesson -  Biskup. Fæddur 1994. Sennilega einn yngsti markaskorari deildarinnar þetta árið enda mega yngstu leikmennirnir vera fæddir 1994. Skoraði 2 mörk.       />

Gústaf Lillendahl -  Útrásarvíkingar. Þrátt fyrir að vera fæddur 1987 er hann talinn efnilegur. Enda eru markmenn oft ekki taldir á hátindi ferilsins fyrr en um 35 ára aldur samanber Edwin Van Der Saar. />

Hlynur Logi Erlingsson – Liðið hans Steina. Fæddur árið 1994. Spilaði vel í vörn Steina í allt sumar og setti 1 mark í bikar. />

Óskar Guðjónsson -  Kompás. Efnilegur miðjumaður fæddur árið 1992. Kompás menn telja sig ekki hafa tapað leik þegar hann hefur komið inn í liðið.               />

Guðmundur Óskar Helgason – Ástríkur. Elsti efnilegasti leikmaðurinn fæddur 1985. Ástríkur er elsta lið deildarinnar í tvennum skilningi, þ.e. aldur leikmanna og tímabil í Sunnlensku deildinni.    

/>

Besti leikmaður deildarinnar árið 2010: />

Hjörtur Harðarson – Biskup. Eins og áður sagði er Hjörtur alltaf að verða betri og betri með aldrinum og þykir hann virkilega vel að þessum titli kominn. />


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2010 18:25:15 / ballroq

Biskup vs FC Kompás (úrslitaleikur bikar)

Leikur: Biskup -  FC Kompás 1-1 (0-0) 4-3 eftir vítaspyrnukeppni. />

Tími: Laugardagur 28. ágúst kl. 18:00 />

Leikstaður: Eyrarbakki />

Áhorfendur: Þó nokkuð margir bara />

Veður: Frábært fótboltaveður en sökum þess hve leikurinn varð langur kólnaði þegar leið á. />

Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson />

Línuverðir: DonEllione og Gestur Einarsson />

Eftirlitsdómari og fjórði dómari: Þorsteinn Hauksson />

Mörk: Sjálfsmark (Biskup) - Elías Örn Arnarson (FC Kompás) />

Spjöld: Óskar Guðjónsson og Aðalsteinn Halldórsson (báðir FC Kompás) />

>

Leiklýsing: />

Það var boðið upp á alvöru úrslitaleik þegar Biskup og FC Kompás mættust á Eyrarbakka í 5. Bikarúrslitaleik Sunnlensku deildarinnar árið 2010. Boðið var uppá bæði spennu og dramatík í æsispennandi leik sem endaði í 110 mínútum og vítaspyrnukeppni að auki. />

Kompás byrjuðu leiki heldur betur og virtist sem Biskupsmenn væru ekki alveg tilbúnir í verkið. En þeir unnu sig þó smá saman inn í leikinn og eftir um það bil 15 mínútur var orðið jafnræði með liðunum sem hélst út fyrri hálfleikinn en hann einkenndist af svolitlu miðjumoði með einstaka færi inn á milli. />

Biskupsmenn áttu fyrsta verulega marktækifæri leiksins en þrátt fyrir góða tilraun frá Hirti Hjartar þá fór boltinn ekki í markið. Stuttu síðar leiddi mjög góður samleikur nafnanna Jóns Óskar og Jón Hrafns til þess að sending barst fyrir mark Kompás en engin Biskup mætti í seinna hlaupið og sigldi því þessi sókn í strand. />

Fátt markvert annað gerðist að ráði í fyrrihálfleik og var staðan því 0-0 í hálfleik. />

Biskupar komu heldur ákveðnari til leiks í seinn hálfleik og sýndu það að þeir vildu ná bikarmeistaratitlinum aftur en hann unnu þeir árið 2008 eftir frækin sigur á FC Flóa einmitt á sama velli. />

Þrátt fyrir góða byrjun Biskups í seinni hálfleik þá voru það Kompás sem komust í fyrsta verulega hættulega færi hálfleiksins þegar Biskup voru dauðheppnir að ná að bjarga boltanum á línu. />

Næsta færi í miklu fjörugri seinni hálfleik áttu Biskupar þegar Bogi Pétur slapp í gegn en skot hans fór naumlega framhjá marki Kompás. />

Það var síðan á 55 mín að Guðmundur Karl Eiríksson komst í skotfæri og átti gott skot að marki sem Marius í marki Biskup náði að verja að Kompás komst yfir eftir að Elías fylgdi áðurnefndu skoti Mumma vel eftir og kom boltanum yfir marklínuna. Staðan því orðin 1-0 fyrir Kompás. />

Um 7 mínútum síðar kom sennilega besta færi leiksins hingað til (meira að segja betra marktækifæri en mark Kompás kom úr) þegar Jóhann Pétur fékk góða sendingu fyrir markið frá Bjarna Bjarna og þrátt fyrir að standa næstum inní marki Kompás náði hann að skalla boltann yfir markið og Kompás stálheppnir að Biskup náði ekki að jafna þarna. />

Fleiri marktækifæri litu dagsins ljós eftir þetta og meðal annars átti Jón Hrafn gott skot að merki en Aron góður markvörður Kompás náði að verja vel. Svipað atvik varð stuttu síðar hinu megin á vellinum þegar Guðmundur Karl(Mummi) átti skot að marki Biskup en Marius góður markvörður Biskups náði að verja vel. />

Eftir þetta fór að færast meiri barrátta í liðin og greinilegt að bæði lið ætluðu sér að ná í bikarinn. Nafnarnir Jóhann Pétur og Bogi Pétur ullu talsverðum usla í vörn Kompás án þess að það skilaði marki. />

Þó var það um 5 mínútum fyrir leikslok að góð skyndisókn Biskups náði árangri. Þá var Bogi á ferðinni í teignum en varnarmenn Kompás virtust aðeins þreyttir og náðu ekki að hreinsa bolta betur frá en svo að hann endaði í markinu og staðan orðin 1-1 og lítið eftir af leiknum. />

Stuttu eftir jöfnunarmarkið urðu mistök í vörn Biskups til þess að Mummi slapp inn fyrir en Marius náði að bjarga á síðustu stundu. Stuttu síðar fengu Biskupsmenn líka færi á að gera út um leikinn en það heppnaðist ekki og staðan því. />

Áfram hélt fjörið út leikinn og náðu Kompás menn að koma sér í góða stöðu tvisvar áður en fínn dómari leiksins flautaði til enda á 90 mínútum. Í annað skiptið var Mummi við það að sleppa í gegn en frábær vörn Tomaszar Celebuki varð til að það heppnaðist ekki. Í hinu færinu varð til eitthvað klafs í og við teiginn sem endaði með því að mjög hár bolti kom fyrir markið sem hefði með smá heppni getað skoppað inn en sem betur fer fyrir Biskup skoppaði boltinn langt frá marklínunni og snerist frá marki eftir að hann lenti. />

Því var staðan 1-1 eftir 90 mínútur og varð því að grípa til framlengingar 2x10 mínútur. Strax í upphafi fyrrihálfleiks framlengingar þá komst Bogi Pétur í ákjósanlegt færi en Aron í marki Kompás varði meistaralega í horn. Upp úr hornspyrnunni kom fínn skalli á mark en aftur var Aron vel á verði í markinu og náði að verja. />

Á þessum tímapunkti í leiknum var eins og Biskup vildi bikarinn aðeins meira en Kompás en þrátt fyrir stífa sókn og taktískar breytingar náðu þeir ekki að komast yfir í leiknum. Kompás fékk samt eitt tækifæri til að stela sigrinum en fínt skot að marki var varið af varnarmanni. />

Biskupar fengu síðan 2 fín tækifæri til að ná að komast yfir áður en flautað var til leiksloka. Annars vegar ágætt skot sem fór naumlega framhjá og í hitt skiptið slapp Hjörtur Hjartar í gegnum vörn Kompás en hann skaut rétt framhjá markinu. />

Staðan því áfram 1-1 eftir 110 mínútna leik og varð því að grípa til vítaspyrnukeppni. Hún var æsispennandi eins og leikurinn. />

Annars fóru vítaspyrnurnar á eftirfarandi hátt: />


1. Hjörtur Harðar skorar                                Páll Óli skorar
2. Bogi Pétur skorar                                       Óskar klikkar
3. Tomasz klikkar                                          Guðmundur Karl skorar
4. Pizemek klikkar                                         Vignir Fannar skorar
5. Jóhann Pétur skorar                                   Lárus Hrafn klikkar />

Bæði lið náðu því að nýta 3 spyrnur af 5 og varð því að grípa til bráðabana sem fór sem svo segir: />

6. Jón Hrafn skorar                                        Aðalsteinn klikkar />

Biskup eru því bikarmeistarar árið 2010 í annað skipti en þeir urðu síðast bikarmeistarar árið 2008. Kompás hefðu með sigri getað jafnað árangur FC Flóa og orðið annað liðið til að vinna tvöfalt í deildinni, þ.e. bæði deild og bikar. En það gerði Flói árið 2006. />

Þess má kannski til gamans geta að þetta er fyrsti úrslitaleikurinn sögu bikarkeppninnar sem FC Flói eða Útrásarvíkingar (sem eru einskonar afleiða af Flóa) spila ekki en þeir duttu út í undanúrslitum gegn Kompás þetta árið. />

Að lokum vil ég þakka öllum fyrir gott sumar og vonandi sjáumst við í ennþá betri og sterkari deild næsta sumar. />

    Baldur Gauti Tryggvason />

formaður Sunnlensku deildarinnar />


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2010 23:33:02 / ballroq

Kompás vs Útrásarvíkingar (seinni leikur undanúrslit í bikar)

Seinni leikur liðanna í undanúrslitum. Kompás vann samanlagt 4-2 og eru því komnir í úrslit á laugardag.


Leikur: Kompás - Útrásarvíkingar          2-1 (1-1)

/>

>

Dags: Laugardagurinn 21. ágúst

Tími: 18:00

Leikstaður: Einbúi

Áhorfendur: 8

Veður: Haustveður!

Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

Mörk Kompás: Sverrir Tómas Bjarnason og Magnús Helgi Sigurðsson

Mörk Útrás: Arnþór Tryggvason

Gul spjöld: Baldvin Hólm og Gunnar Óli báðir í Útrás

Rauð spjöld: Engin

>

Lýsing: />

engin />

>

Lið Kompás: />

Árni Steinn, Aron Valur, Aðalsteinn, Birgir, Davíð Brynjar, Lárus Hrafn, Sverrir Tómas, Sverrir A, Einar Guðni, Páll Óli, Kjartan, Magnús Helgi, Tómas Karl, Vignir, Hilmar Þór, Óskar />

>

Lið Útrás: />

>

Andri, Gunnar Óli, Gunnar Ingi, Rúnar, Haraldur, Baldvin, Ragnar, Arnþór, Ingvar, Árni Freyr, Heiðar, Halldór, Kristó, Stefán, Karl, Baldur Gauti, Guðmundur Geir />


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 15:01:39 / ballroq

Lokastaða og markahæstu menn

Þá er það klárt. Sunnlensku deildinni 2010 er lokið.

Kompás peyjarnir náðu því að landa deildarmeistartitlinum með góðum sigri á Ástrík. Á meðan vann UMFG einnig Liðið hans Steina og eru Kompás og UMFG því jöfn að stigum í deildinni en það munar 7 mörkum hvað Kompás er með hagstæðara markahlutfall.

En lokastaðan er svona:
Sunnlenska deildin 2010









Sæti Lið Leiknir l. Unnir Jafnt. Tap Skoruð Fengin +  - Stig

1. FC Kompás 9 7 1 1 44 14 30 22

2. UMFG 9 7 1 1 38 15 23 22

3. Biskup 9 6 1 2 54 21 33 19

4. Útrásarvíkingar 9 5 2 2 29 20 9 17

5. Börn Náttúrunnar 9 5 1 3 36 33 3 16

6. Bambóleó 9 4 1 4 25 28 -3 13

7. Liðið hans Steina 9 4 0 5 31 39 -8 12

8. Drangur 9 2 0 7 16 40 -24 6

9. Ástríkur PSV 9 1 1 7 12 48 -36 4

10. KH  9 0 0 9 0 27 -27 0 Vikið úr mótinu

Þá var virkilega spennandi keppni um markahæsta mannin en það var hann Magnús Helgi í Kompás sem hafði það á lokasprettinum með því að setja heil 5 mörk í seinasta leik (má það eða hvað). Þá kom Kristinn Ólafsson í Biskup sterkur inn með 4 mörkum í lokaleik.

Annars er lítur listi 11 efstu markaskorara svona út:

Magnús Helgi Sigurðsson FC Kompás 16
Eyjólfur Eyjólfsson Liðið hans Steina 13
Kristinn Ólafsson Biskup 12
Bogi Pétur Eiríksson Biskup 9
Atli Már Jónsson Börn Náttúrunnar 8
Björgvin Guðmundsson Börn Náttúrunnar 8
Þráinn Pálsson UMFG  8
Héðinn Harðarson UMFG  8
Helgi Ármannsson Biskup 7
Guðmundur Karl Eiríksson FC Kompás 7
Anton Dagsson Liðið hans Steina 7

Ef bikarinn er tekinn með í þetta er Kristinn markahæstur en hann hefur skorað 5 mörk fram að þessu í bikarnum og getur bætt við það næsta laugardag.

Það er síðan orðið ljóst að í úrslitum bikarsins mætast Biskup og Kompás. En Kompás unnu í gærkvöldi Útrásarvíkinga 2-1 eða samtals 4-2.

Það er því ljóst að um hörkuleik verður að ræða á laugardaginn á Eyrarbakka klukkan 16:00. Hvet ég alla til að mæta og horfa á hann og koma síðan á lokahóf um kvöldið. Sérstaklega þeir sem geta á tt vona á einhverjum verðlaunum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 14:42:16 / ballroq

Liðið hans Steina vs UMFG

Leikur: Liðið hans steina - UMFG />

>

Tími: 18.ágúst kl. 19:30

Leikstaður: Einbúi

Áhorfendur: rétt minna en 500

Veður: Rigning, gola til að byrja með. Rigningin jókst svo í seinni hálfleik með auknum vindi og kulda />

Dómari: Snorri Sigurðsson (Dolli)

Mörk UMFG: Héðinn Harðar (3)Þráinn, Svavar, Jóhann

Mörk LHS: Eyjólfur Eyjólfsson

Gul spjöld: Hlynur Erlings – LHS

Rauð spjöld: Jóhann – UMFG

>

Í Einbúa mættust lið LHS og UMFG í leiðindaveðri. Leikmenn UMFG fjölmenntu vel enda mikið í húfi hjá þeim og þurftu þeim á öllum sínum styrk að halda á meðan LHS var með hálf vængbrotið lið.

Leikurinn hófst engu að síður og byrjuðu leikmenn LHS ívið betur á fyrstu metrunum og stóðu töluvert í leikmönnum UMFG. Og það var síðan eftir 8 mín leik að hinn útsmogni og baneytraði eyjólfur slapp í gegnum vörn UMFG og skoraði fyrsta markið LHS komnir í 1-0 forystu og komu kanski sjálfum sér eilítið á óvart. Við þetta jókst baráttan og sigurviljinn í báðum liðum en ívið meira hjá leimönnum umfg og var jafnræði með liðunum lengst um af í fyrri hálfleik þótt svo að sóknir UMFG virtust meira markvissari. Og það var síðan Héðinn sem skoraði fyrsta mark umfg og jafnaði og staðan orðin jöfn 1-1. Við það jókst sóknarþungi töluvert og skoruðu þeir annað fljólega og var þar að verki Þráinn pálsson. Leikmenn LHS áttu sína spretti inn á milli og fékk Gestur Einarsson dauðafæri fyrir opnu marki en ákvað að senda boltann frekar yfir markið, UMFG verulega heppnir þar en staðan í hálfleik 1-2 UMFG í vil.

>

Í seinni hálfleik þurftu leikmenn LHS að skipta um markmann sökum veikinda Ingvars sem hafði varið eins og berserkur í fyrri hálfleik og algjörlega dominerað í sínum aðgerðum í fyrri hálfleik.  

Það kom mjög fljótlega í ljós því 2.markmaður LHS virtis enn utanvallar þó svo að búið væri að flauta til seinnihálfleiks og ákváðu þá leikmenn UMFG að sækjá á fleiri mönnum og mæta þreyttum leikmönnum LHS framar á vellinum og nánast allan seinnihálfleik voru leikmenn LHS annaðhvort meiddir eða virtust dauðuppgenfnri á vellinum, en áttu þó sínar rispur inná milli en samt sem áður réðu lið UMFG öllu á vellinum og byrjðu snemma að skora því að eftir hornspyrnu barst boltinn út í teig og markmaður LHS kominn of framarlega og Svavar nýtti sér það og skoraði utan teigs yfir markmann LHS, staðan orðin 1-3. Áfram héldu leikmenn UMFG að ráða öllu sem þeir vildu og bættu öðru marki við stuttu sienna þegar héðinn skoraði aftur og staðan orðin 1-4 og útlitið slæmt fyrri LHS. Og ekki voru leikmenn UMFG nærri hættir og bættu í og nokkru síðar var það jóhann sem skoraði. Og ekki voru UMFG nett hættir því héðinn harðar átti eftir að fullkomna þrennu sína. Og lokastaðan því í Einbúa því 1-6 UMFG í vil sem var þó ekki nóg fyrir þá til að hreppa titilinn í ár en fengu samt sem áður sín 3 stig. Á meðan leikmenn LHS gengu niðurlútir af velli eftir svosem ágætis sumar.

En LHS vill þakka UMFG fyrri leikinn og sumarið vonast til að geta nappað af þeim fleiri titlum í framtíðinni. J

>

>

Lið LHS: Arnar Páll, Arnar Snær, Atli Hjörvar, Ásmundur, Eyþór Friðbertsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Gestur Einarsson, Hafþór Gylfi, Hlynur Erlingsson, Hjálmar Már, Kjartan Gunnars, Skúli Gíslason, Rakel Ýr, Þorsteinn Hauksson, Tómas Héðinn, Viktor Ómarsson, Ingvar örn,    />

Lið UMFG: Jóhann Halldór Sigurðsson, Elvar Ásmundsson, Héðinn Hauksson, Héðinn Harðarson, Kristján Ingvarsson,  Bjarki Freyr Guðmundsson, Svavar G. Pálmarsson, Jón Einar Valdimarsson, Þráinn Pálsson, Eiríkur Ólafsson, Bergþór I. Sigurðsson, Ásbjörn Örvar Þorláksson, Eysteinn, Kristján V. Sigurjónsson, Hannes Ó. Gestsson, Sigurður Kristmundsson, Sigurður Sigurjónsson, Sigfús Harðarson, Bjarni Rúnars og Hafsteinn. />


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 14:38:21 / ballroq

Ástríkur PSV vs FC Kompás

Leikur: Ástríkur PSV –  FC Kompás 0-9 (0-3) />

>

Tími: 18. Ágúst 2010 – kl. 19:30

Leikstaður: Eyrarbakki

Áhorfendur: ca. 12-30

Veður: Rigning, gola til að byrja með. Rigningin jókst svo í seinni hálfleik með auknum vindi og kulda />

Dómari: Jón Ásgeir Guðjónsson

Mörk Kompás: Magnús Helgi Sigurðsson 5, Guðmundur Karl Eiríksson 2, Árni Steinn Steinþórsson 1, Tómas Karl Guðsteinsson 1

Gul spjöld: Magnús Helgi Sigurðsson – Kompás

Rauð spjöld: Engin

>

Í fyrsta sinn í sumar var leiðinlegt veður í Sunnlensku deildinni en ekki bongóblíðan sem einkennt hefur veðurfarið í boði gróðurhúsaáhrifanna. Menn létu þó ekki stoppa sig enda mikið í húfi fyrir Kompásmenn sem voru efstir fyrir þessa lokaumferð en Ástríksmenn vildu ólmir reyna að bæta upp slakt gengi sumarsins með góðum endi. />

>

Kompásmenn byrjuðu leikinn betur og héldu boltanum vel innan liðsins, létu hann ganga á miðjunni og finna glufur á vörn Ástríks. Úr því sköpuðust nokkur færi en ekkert af þeim skilaði árangri. Ástríksmenn áttu nokkra rispur fram á við en fá færi komu út úr því. Það var svo um miðjan fyrri hálfleik sem Kompásmenn brutu ísinn og skoruðu sitt fyrsta mark. Stuttu seinna fengu þeir hornspyrnu sem endaði með háum bolta á leið í markið, Doninn skallaði á marklínu en náði ekki að koma honum í burtu og eftir baráttu við Kompásmann endaði boltinn í netinu. Kompásmenn bættu svo við þriðja markinu fyrir leikhlé með stungu inn fyrir og voru komnir í þægilega stöðu. />

>

Ástríksmenn komu grimmir í seinni hálfleikinn staðráðnir í að gera betur. Við það jafnaðist leikurinn til muna, Kompás var meira með boltann en Ástríksmenn fengu nokkur góð færi sem þeir náðu ekki að nýta. Það var svo aftur ekki fyrr en um miðjan hálfleikinn sem fyrsta markið kom, þá skoruðu Kompásmenn stöngina inn með skoti úr vítateignum. Eftir það tóku Kompásmenn meira og minna öll völd á vellinum. Fimmta markið kom fljótlega í kjölfarið. Ástríksmenn fóru að taka meiri sénsa, staðráðnir í að skora mark eða mörk þar sem þeir höfðu engu að tapa. Þreytan var þó farin að segja til sín hjá gömlu mönnunum gegn sprækum Kompásstrákum og Guðni framherji Ástríks var oft einmana meðan Kompásmenn sóttu á mörgum mönnum. Síðasta korterið komu mörkin á færibandi hjá Kompás og einkenndust af þreytu Ástríksvarnarinnar, heppni, greddu og sigurvilja enda titillinn í húfi. 9-0 sigur niðurstaðan, þó of stór sigur miðað við gang leiksins. />

>

Leikurinn endurspeglaði nokkurn veginn gengi þessara tveggja liða í sumar, Kompás tryggðu sér titilinn í deildinni með sigrinum enda með snögga, vel spilandi unga stráka á meðan niðurlægjandi tap Ástríks batt endahnútinn á hörmulegt tímabil þeirra. />

Ástríksmenn vilja þakka Kompás fyrir leikinn og óska þeim til hamingju með titilinn, þið hefðuð ekki getað þetta án okkar. />

Lið Ástríks PSV: Björn Bragi, Don Ellione, Egill, Aron, Eyþór, Finnur, Hinni (Hinrik), Jón Hilmar, Jón Rúnar, Maggi (Magnús Björn), Dubbi (Sigurður Greipur), Smári, Steinn, Tommi (Tómas Jón), Þór, Svanur, Valdi (Þorvaldur), Guðni. Guðlaugur Jóhannesson stjarneðlisfræðingur hjá Princetonháskóla í Bandaríkjunum fékk leyfi til að spila en hann var óvænt á landinu, gömul kempa úr gullaaldarliði Ástríks. />

Lið Kompás: Aron, Árni Steinn, Biggi, Davíð Brynjar, Einar Guðni, Elías Örn, Mummi (Guðmundur Karl), Guðni Reynir, Hilmar, Ingi Björn, Kjartan, Lárus, Magnús Helgi, Óskar, Plóli, Sverrir Andrésson, Sverrir Tómas, Tómas Karl, Vignir Fannar, Arnar Þór />


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2010 16:21:59 / ballroq

Biskup vs Drangur

Biskup – Drangur   6 – 1     (4-0) />

Miðvikudagur 18. ágúst kl. 20:00 />

>

Leikstaður: Reykholt />

Áhorfendur: 6 />

Veður: Stíf norðanátt í upphafi leiks, lægði þegar leið á leikinn. />

>

Dómari: Andri Helgason />

Línuverðir: Leikmenn Biskup />

>

Mörk Biskup: Kristinn Ólafsson 4 ( 4’, 21’, 59’,90’) Bogi Pétur Eiríksson (23’) Hjalti Pétur (37’). />

Mörk Drangs: Pétur Geir(80’) />

Gul spjöld:  Sigurður Hafþórsson, Tomasz Celebuki, Biskup – Stefán Kjartansson />

Rauð spjöld: Engin. />

>

Drangsmenn mættu í Reykholt í þessari síðustu umferð sumarsins.  Biskups menn byrjuðu leikinn með vindinn í bakið og hjálpaði það því strax á 4 mínútu náðu þeir að skora þegar Kristinn Ólafsson slapp einn í gegn um vörn Drangs. Hann var svo aftur á ferðinni á 21. mínútu og staðan orðin 2-0.  Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Bogi Pétur og var þá róðurinn farinn að þyngjast fyrir gestina. Hjalti Pétur skoraði svo á 37. min og staðan í hálfleik var 4-0. />

>

Siðari hálfleikur var mun jafnari.  Drangsmenn höfðu nú vindinn í bakið og skiptust liðin á að sækja framan af.  Kristinn fullkomnaði síðan þrennuna á 59. mínútu og kom heimamönnum í 5-0.  Drangsmenn minnkuðu svo muninn á 80. mínútu þegar Pétur Geir skoraði með góðu skoti. Þegar hér var komið við sögu var frekar farið að dimma og gerði það leikinn bara skemmtilegri. Baráttan var mikil í lokinn og fengu Drangur hornspyrnu á lokamínútunni og fór allir inní teig og þar á meðal Benni markvörður þeirra, en þeir náðu ekki að skora og Biskupar komu í hraða sókn og var það Kristinn Ólafsson sem skoraði í opið markið og var það hans fjórða mark í leiknum. Lokatölur í reykholti voru 6 – 1. />

>

Biskup fékk að nota einn ungann og óskráðan leikmann í þessum leik, Hjalta Pétur með samþyki Drangs. />

>

>

Lið Biskup: Axel Sæland, Bergsteinn Björn Bjarnason, Bjarni Bjarnason, Bogi Pétur Eiríksson, Einar Ásgeirsson, Guðmundur Árni Geirsson, Kristinn Ólafsson, Lubert Pizemek, Marius Vaisvilas, Oddur Bjarni Bjarnason, Sigurður Orri Hafþórsson, Smári Þorsteinsson, Sævar Örn Oddsson, Tomasz Celebuki. Hjalti Pétur Jakobsson. />

>

Lið Drangs. Ágúst Leó, Birkir Grétarsson, Benedikt Freyr, Ívar Guðnason, Elvar
Jóhannsson, Gísli Kristinn, Björn Kristjánsson, Þorgils Haukur, Birgir
Haraldsson, Stefán Kjartansson, Pétur Geir, Pálmi Kristjánsson, Hjörleifur
Þór />

>

Við í Biskup þökkum öllum liðunum fyrir skemmtilegt sumar og óskum FC Kompás til hamingju með titilinn. />


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2010 16:18:57 / ballroq

Börn Náttúrunnar vs Útrásarvíkingar

Leikur: Börn Náttúrunnar - Útrásarvíkingar 9-4 (5-1) />

Tími: Miðvikudagur 18. ágúst kl. 19:30 />

Leikstaður: Stokkseyri />

Áhorfendur: Fáir />

Veður: Ekki gott />

Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson />

Mörk: Valdimar Gylfa (4), Björgvin Guðmunds (4) og Gunnar Valberg – Andri Björn, Halldór Ari, Rúnar Hjálmars og sjálfsmark />

Spjöld:  Engin />

>

Lýsing: />

Engin lýsing />

>

Lið Börn Náttúrunnar: Valdimar Gylfa, Gunnar Valberg, Björgvin Guðmunds, Davíð Örn, Fjölnir, Einar Ingi, Kristinn, Þorsteinn Óli, Andri, Barði Páll og Jón Ólafs. />

Lið Útrásarvíkinga: Arnþór, Baldur Gauti, Baldvin Hól, Björn Kristinn, Halldór Ari, Heiðar Pétur, Ingvar, Kristófer Ari, Ragnar Örn, Rúnar, Sigurður Ingi, Árni Freyr og Andri Björn />


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 23:12:49 / ballroq

Lokaumferðin

Þá er deildarkeppni Sunnlensku deildarinnar lokið þetta árið. Þetta var æsispennandi umferð þar sem allir 4 leikirinar voru spilaðir á sama tíma. Það er svo merkilegt að þetta hefur verið reynt áður en það hefur gengið frekar illa að koma því saman, lið hafa gefið leiki því þeir hafa ekki haft neitt í húfi og svo framvegis.

Reyndar er bara tilviljun að þetta fór svona fram því leikirnir áttu að vera á öðrum dögum en það er gaman að þetta hafi komið svona út.

Það er skemmtilega lítill munur á 2 efstu liðunum en eingöngu munar 7 mörkum að þau séu jöfn. Þá var heilmikil barátta um 3 sætið líka og fór svo að lið skiptust á sætum þar.

Leikir kvöldsins fóru á eftirfarandi hátt:

Börn Náttúrunnar - Útrásarvíkingar 9 - 4
Biskup - Drangur 6 - 1
Liðið hans Steina - UMFG 1 - 6
Ástríkur PSV - FC Kompás 0 - 9

Lokastaðan er því svona:

Sæti Lið Leiknir l. Unnir Jafnt. Tap Skoruð Fengin +  - Stig

1. FC Kompás 9 7 1 1 44 14 30 22

2. UMFG 9 7 1 1 38 15 23 22

3. Biskup 9 6 1 2 54 21 33 19

4. Útrásarvíkingar 9 5 2 2 29 20 9 17

5. Börn Náttúrunnar 9 5 1 3 36 33 3 16

6. Bambóleó 9 4 1 4 25 28 -3 13

7. Liðið hans Steina 9 4 0 5 31 39 -8 12

8. Drangur 9 2 0 7 16 40 -24 6

9. Ástríkur PSV 9 1 1 7 12 48 -36 4

10. KH  9 0 0 9 0 27 -27 0 Vikið úr mótinu

Úrslit kvöldsins eru kannski að mestu eftir bókinni en athylgi vekur hrap Útrásarvíkinga sem höfðu fyrir leik kvöldsins bara fengið á sig 11 mörken fengu heil 9 á sig í kvöld.

FC Kompás fékk eftir sinn leik afhentan bikarinn fyrir deildina og eru þeir vel komnir að því að hafa unnið hann loksins. Þetta hefur verið nokkur ára uppbygging fyrir þá og eru þeir nú að uppskera árangur erfiðisins.

Næst á dagskrá er seinni undanúrslitaleikur Kompás og Útrásarvíkinga á laugardag næsta, þann 21. ágúst.

Síðan verður úrslitaleikurinn spilaður þann 28. ágúst væntanlega á Eyrarbakkavelli klukkan 16:00. Biskup eru komnir alla leið í þann leik og eins og áður sagði ræðst það á laugardag hverjum þeir mæta.

Í beinu framhaldi af bikarúrslitaleiknum verður síðan haldið lokahóf deildarinnar, þar sem verðlaun verða veitt fyrir sumarið og fleira. Lokahófið verður vætanlega á Pizza Islandia og verða einhver tilboð á barnum og boðið upp á pizzahlaðborð sem mun kosta einhvern smá pening á hvern og einn.


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 00:25:06 / ballroq

Lokaumferð

Á morgun miðvikudag munu úrslit ráðast í Sunnlensku deildinni þetta árið er allir 4 leikirnir sem eftir eru verða spilaðir á sama tíma. Staðan fyrir þessa umferð er æsispennandi og geta 4 lið unnið deildina fyrir þessa leiki.

Staðan er svona:
Sæti Lið Leiknir l. Unnir Jafnt. Tap Skoruð Fengin +  - Stig
1. FC Kompás 8 6 1 1 35 14 21 19
2. UMFG 8 6 1 1 32 14 18 19
3. Útrásarvíkingar 8 5 2 1 25 11 14 17
4. Biskup 8 5 1 2 48 20 28 16
5. Börn Náttúrunnar 8 4 1 3 27 29 -2 13
6. Bambóleó 9 4 1 4 25 28 -3 13
7. Liðið hans Steina 8 4 0 4 30 33 -3 12
8. Drangur 8 2 0 6 15 34 -19 6
9. Ástríkur PSV 8 1 1 6 12 39 -27 4
10. KH  9 0 0 9 0 27 -27 0

Kompás, UMFG, Útrásarvíkingar og Biskup eiga öll möguleika fyrir þessa lokaumferð. Eftirfarandi leikir eru eftir:

Mið. 18. ágúst 19:30 Börn Náttúrunnar Útrásarvíkingar   Stokkseyri
Mið. 18. ágúst 19:30 Liðið hans Steina UMF G   Árnes
Mið. 18. ágúst 19:30 Biskup Drangur   Reykholt
Mið. 18. ágúst 19:30 Ástríkur PSV FC Kompás   Eyrarbakki

Þá titilinn um markakónginn mjög spennandi einnig, En Eyjólfur í Liðinu hans Steina hefur einu marki betur heldur en Magnús Helgi í Kompás. Annar eru 8 efstu markarskorar svona:

Nafn Lið Fjöldi marka
Eyjólfur Eyjólfsson Liðið hans Steina 12
Magnús Helgi Sigurðsson FC Kompás 11
Bogi Pétur Eiríksson Biskup 8
Kristinn Ólafsson Biskup 8
Atli Már Jónsson Börn Náttúrunnar 8
Helgi Ármannsson Biskup 7
Anton Dagsson Liðið hans Steina 7
Þráinn Pálsson UMFG  7

Megi þessi lokaumferð verða spennandi og sanngjarn sigurvegari standa uppi í lokin.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2010 00:14:23 / ballroq

Drangur vs Liðið hans Steina

Drangur – Liðið hans Steina 3-5 (2-2)    />

>

Tími: Sunnudagurinn 15. Ágúst />

>

Leikstaður: Vík í Mýrdal />

>

Áhorfendur: um 20 />

>

Veður: úrhellisrigning />

>

Dómari: Ólafur Elí />

>

Mörk: Pétur 2, Kjartan Kára (Drang) – Eyjó 3, Ási, Hjálmar (LHS)

>

>

Gul Spjöld:  Atli (LHS) />

Rautt Spjald: Enginn />

>

Gestirnir byrjuðu af krafti og komust í 0-2 eftir aðeins 15 mín leik. En eftir það réðu Drangs menn öllu á vellinum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Þrátt fyrir hvert dauða færið á fætur annars þá náðu heimamenn aðeins að skora 2 mörk og jafna leikinn. Markmaðurinn hans Steins varði meistaralega færin sem heimamenn fengu. Seinni hálfleikur byrjaði nákvæmlega eins og sá fyrri endaði og náðu Drangsmenn að skora eitt mark úr fjölmörgum sóknum. Það var síðan að þegar 20 mín voru eftir þá voru drangsmenn búnir á því og LHS kom með krafti inn í leikinn að nýju sem skilaði þeim 2 mörkum og einu víti á lokamínútunni. Lokastaðan 3-5 fyrir gestina og drangur þakkar fyrir sig í þessari deild. />

>

Kv. Ágúst Leó og Pálmi />

Lið Drangs:, Ágúst Freyr Bjartmarsson, Ágúst Leó Sveinsson, Björgvin Jóhannesson, 
Birkir Grétarsson, Brynjar Þór Sigurðsson, Ívar Guðnason,  Pálmi Kristjánsson,
Stefán Kjartansson, Þorgils Haukur, Pétur Geir, Kjartan Kárason, Gísli Kristinn Guðbergsson

>

Lið LHS: Ingvar Örn Eiríksson, Arnar Freyr Hermannson, Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir, 
Kjartan Gunnarsson, Eyþór Friðbertsson, Viktor Ómarsson,
Arnar Snær Erlingsson, Hlynur Erlingsson, Tómas Héðinn Gunnarsson, Þorsteinn Hauksson,
Gestur Einarsson, Hjálmar Már Kristinsson, Skúli gíslason, Kristinn Gunnarsson,
Ásmundur Ingjaldsson, Eyjólfur Eyjólfsson,
Atli Hjörvar Einarsson />

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2010 23:55:21 / ballroq

FC Kompás vs Biskup

Kompás – Biskup 4-4 (2-3)         />

Laugardagur. 14.08.10.                                                      

Einbúi

Dómari leiks: Snorri Sigurðarson

Áhorfendafjöldi: 8

Mörk:Magnús Helgi 2, Guðmundur Karl og Tómas Karl – Kristinn Ólafsson 3 og Bogi Pétur

Gul spjöld : Engin

Rauð spjöld : Hjörtur - Biskup

>

>

Leiklýsing: />

>

Engin

>

Lið Kompás: />

Aron Valur, Árni Steinn, Ársæll, Arnar Þór, Birgir Örn, Davíð Brynjar, Guðmundur Karl, Hilmar Þór, Kamil Daniel, Kjartan Björn, Lárus Hrafn, Magnús Helgi, Marinó Geir, Óskar Guðjónsson, Páll Óli, Sverrir A, Sverrir T, Tómas Karl, Vignir, Einar Guðni />

Lið Biskup: />

Ari Gylfason, Bergsteinn Björn Bjarnason, Bjarni Bjarnason, Bogi Pétur Eiríksson, Einar Ásgeirsson, Hjörtur Harðarson, Kristinn Ólafsson, Lubert Pizemek, Marius Vaisvilas ,Oddur Bjarni Bjarnason, Smári Þorsteinsson, og Tomasz Celebucki.

>


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.08.2010 23:54:34 / ballroq

UMFG vs Börn Náttúrunnar

UMFG - Börn Náttúrunnar 3-2 (1-2) />

Föstudagur. 13.ágúst 2010 />

Staður: Árnes />

Dómari leiks: Gestur Einarsson

Áhorfendafjöldi: 72.000 manns.

Mörk  Elvar Ásmundsson, Þráinn Pálsson og Sigurður Sigurjónsson (UMFG) - Gunnar Valberg og Valdimar Gylfason (BN).

Gul spjöld UMFG: Sigurður Kristmundsson

                  BN:  Valdimar Gylfason

Rauð spjöld : Engin

>

Leiklýsing: />

>

Það voru tvö sterk lið sem mættust á fallegu föstudagskvöldi í Árnesi, Gnúpverjar þurftu sigur til að halda sér í titilbaráttu en Börnin eru í efsta pakkanum á töflunni. Eftir aðeins korter var það Valdimar Gylfason sem lék auðveldlega á varnarmann UMFG og skoraði af mikilli öryggi af stuttu færi, fyrrverandi A-landsliðsmaður eins og sumir héldu fram á varamannabekk UMFG. Eftir korter var það Gunnar Valberg sem að skoraði með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teig eftir að miðvörður UMFG hafði runnið og misst af boltanum. Staðan 0-2 og útlitið slæmt hjá Gnúpverjum. Síðustu 10mín hálfleiksins voru þó eign UMFG og var það Elvar Ásmundsson sem minnkaði muninn eftir laglegt spil, 1-2 í hálfleik fyrir BN.

>

UMFG byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og sköpuðu sér þónokkur færi, Börnin gáfu í eftir 15-20 mín og virtust UMFG ekki geta snúið blaðinu við. Það var ekki fyrr en á 70.mín sem Þráinn Pálsson slapp einn í gegnum þétta vörn Barnanna og vippaði laglega yfir markmanninn og í netið, 2-2 og 20mín eftir. Liðin skiptust á að sækja en UMFG virstust sprækari enda trilljón skiptingar allann leikinn í gangi, á 85.mín dróg til tíðinda. Gnúpverjar fengu aukaspyrnu aðeins nær teignum en hjá hornfánanum, Héðinn Harðarson átti frábæra sendingu inn í teig þar Sigurður Sigurjónsson var einn á auðum sjó og flikkaði boltanum í netið áður en markmaður BN náði til boltans.

>

Börnin sóttu afganginn af leiknum og voru almenn leiðindi eins og þau gerast best í sunnlensku deildinni í fyrirrúmi í herbúðum beggja liða. Allir voru þó vinir í lokin nema sumir og UMFG vann 3-2.

>

>

Lið UMFG: Sigfús Harðarson, Eiríkur Ólafsson, Sigurður Sigurjónsson, Sigurður Krismundsson, Hákon Aðalsteinsson, Svavar Geir Pálmarsson, Héðinn Harðarson, Þráinn Pálsson, Þráinn Þórarinsson, Hafsteinn Einarsson, Jóhann Knútur, Jón Einar valdimarsson, Elvar Ásmundsson, Ásbjörn Örvar Þorláksson, Jóhann Sigurðsson, Bergþór Sigurðsson, Héðinn Hauksson, Eysteinn, Kristján Valur Sigurjónsson, />

Lið BN: Kemur síðar. />

>

>

/>

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 128151
Könnun
Hverjir verða bikarmeistarar
Biskup
20 atkvæði

UMFG
21 atkvæði

Útrásarvíkingar
6 atkvæði

FC Kompás
20 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 67